Duldýrasafnið
Duldýrasafnið
Gat ekki hlaðið upplýsingar...
Í Duldýrasafninu skyggnumst við inn í veröld sem fæstir hafa augum litið.
Þar tekur á móti okkur furðulegur félagsskapur duldýranna. Finngálknið, blendingur manns og dýrs, öllum vargi skaðlegri. Krákinn; hinn risavaxni kolkrabbi sem nærist á frystitogurum og flutningaskipum. Lyngbakurinn; ódauðlegt klækjahveli sem flotið hefur um heimsins höf í gervi eylands frá upphafi tímans. Trygglynd dagtröll og mannskæð nátttröll sem þvælast um fáfarna vegi og fjarlæga fjallasali. Dvergarnir og álfarnir sem búa í holtum og hæðum. Tilberar, galdrasendingar, mórar og huldulandið Tröllbotnaland.
Öll þessi furðufyrirbæri og fleiri til, efnisgerast á síðum Duldýrasafnins. Með hverri mynd fylgir texti sem er tekin beint úr sögnum og sjónlýsingum og gefa þau innsýn inn í óravíddir ímyndunaraflsins á liðnum öldum. Lýsingarnar bregða upp mynd af menningunni og mannlífinu sem framkallaði verurnar, fóstraði þær og hélt í þeim lífinu fram á okkar daga.
80 bls útgáfuár 2014

-
Afhending verka
Verkin eru vandlega pökkuð inn og send til nýrra eigenda með Íslandspósti.
Ef óskað er eftir því má líka nálgast þau í Myrkraverk Gallery, Skólavörðustíg 3.
